Undrandi á að ekki eigi að styrkja fjölmiðlanám á landsbyggðinni

Brautarstjóri fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri segir það koma á óvart að stjórnvöld ætli eingöngu að styrkja nám í blaða- og fréttamennsku í Reykjavík í aðgerðum til að styrkja íslenskt fjölmiðlaumhverfi. Með því sé verið að hygla einum háskóla umfram aðra. „Háskóli Íslands fékk fyrir tveimur árum loforð frá stjórnvöldum um 45 milljónir til þriggja ára og núna að þá er blaðamennskunámið við HÍ að fá líklega 15 milljónir til viðbótar“, segir Guðbjörg Hildur Kolbeins, brautarstjóri í fjölmiðlafræði og dósent við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Þá vísar hún til tveggja styrkja frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Annar þeirra er vegna nýrrar námsleiðar í HÍ - grunnáms í blaða- og fréttamennsku, sem áður var aðeins kennt á meistarastigi. Síðari styrkurinn er svo til kominn vegna aðgerðaáætlunar í málefnum fjölmiðla , sem ráðherra kynnti undir lok síðasta árs. Þar segir að stjórnvöld vilji styðja tímabundið við námsleiðina með fjárframlagi sem nemi einu stöðugildi. Hlutfall menntaðra blaðamanna hérlendis sé lágt og nauðsynlegt að stjórnvöld styðji við nám í blaðamennsku. Við Háskólann á Akureyri hefur lengi vel verið eina grunnnámsleið landsins í fjölmiðlafræði, sem einnig kennir áfanga í blaða- og fréttamennsku. Styrkja fjölmiðla utan borgarinnar en ekki nám á landsbyggðinni Guðbjörgu þykir styrkurinn til HÍ ekki til þess fallinn að auka samvinnu milli skólanna. Eins skjóti það skökku við að aðgerðaáætlun sem eigi að styrkja fjölmiðla á landsbyggðinni, hundsi fjölmiðlanám utan borgarinnar. „Þetta kom mér mjög á óvart, að sjá þetta frá núverandi háskólaráðherra. Að eingöngu væri verið að taka Háskóla Íslands, út fyrir sviga en gleyma okkur og því góða starfi sem við erum að gera“, segir Guðbjörg og bætir við að þau hafi brautskráð marga af frambærilegustu fjölmiðlamönnum landsins á undanförnum áratugum. Hafi þið gert einhverjar athugasemdir við þetta eða óskað skýringa? „Nei reyndar ekki, en það er ef til vill ástæða til þess.“