Hætti við að panta flug til London og samdi í staðinn til 2028

Sandra María Jessen hefur framlengt samning sinn við þýska úrvalsdeildarliðið FC Köln. Íslenski landsliðsframherjinn gekk til liðs við Köln síðasta sumar og hefur síðan þá skorað níu mörk í sautján leikjum fyrir Köln í Bundesligunni og er í hópi markahæstu leikmanna hennar.