Minnstu spillinguna í ríkjum heims er að finna í Danmörku og fjögur af fimm ríkjum á Norðurlöndum eru í sex efstu sætunum hjá samtökunum Transparency International. Ísland er í því tíunda. Verst er staðan í Suður-Súdan og Sómalíu þar sem spilling er sögð mest. Listi Transparency International byggir á mati erlendra sérfræðinga og innlendra embættismanna um stöðu hvers lands. Skalinn er frá 0 þar sem spilling er mjög mikil upp í 100 þar sem spilling er mjög lítil. Danmörk fær 89 stig á toppnum og Finnland kemur næst með 88 stig. Suður-Súdan og Sómalía fá aðeins níu stig. Ísland er með 77 stig. Það er óbreytt frá síðasta ári. Tíunda sætið er jafnframt það sama og í fyrra.