Birgir Jónasson, settur fangelsismálastjóri, segir alvarlegt að símtæki hafi fundist í fimm af níu fangaklefum sem leitað var í á Litla-Hrauni í sameiginlegum aðgerðum lögreglu á Íslandi og Europol. Skoða þurfi verklag í lokuðum fangelsum hér á landi. Unnið er að því að rannsaka innihald símanna en lögregla segir rökstuddan grun fyrir því að notast hafi verið við þau tæki í skipulagningu á brotastarfsemi. „Þannig að það er verið að skoða það,“ segir Birgir. „Það er augljóst að það þarf að skerpa á verklagi en við þurfum að reyna að finna út úr því hvernig þessir farsímar hafa komist inn í fangelsið.“ Alþjóðlegt glæpagengi upprætt Alls voru 24 handteknir í aðgerðum Europol og lögreglu hér á landi þann 4. febrúar, þar af ellefu hér á landi. Aðgerðirnar snéru að upprætingu fíkniefnahrings sem smyglaði eiturlyfjum til Íslands. Í tilkynningu segir að glæpagengi sem teygði anga sína frá Suður-Ameríku til Evrópu hafi verið upprætt. Gengið notaði burðardýr til að smygla kókaíni milli landa og reyndi þannig að koma í veg fyrir að lögregla kæmist á snoðir um skipuleggjendur smyglsins. Talið er að gengið hafi selt fíkniefni fyrir fjórar milljónir evra, andvirði um 600 milljóna króna, með smygli sínu. Nokkrar leiðir inn í fangelsin Birgir segir að ávallt sé reynt að fyrirbyggja alla brotastarfsemi í fangelsum landsins og að komi upp grunur um slíkt sé það tilkynnt til lögreglu. „Það eru nokkrar leiðir inn í fangelsin, það eru heimsóknir og aðrir gestir sem koma og fangar fá leyfi. Þannig að við þurfum að skoða þetta alvarlega hvernig þetta getur gerst í þessum mæli,“ segir Birgir Hann segir að öðru hverju komi upp mál þar sem símar finnist í fórum fanga í fangelsum þar sem slíkt sé bannað. Ekki gildi sömu reglur í öllum fangelsum en föngum í lokuðum fangelsum líkt og á Litla-Hrauni er með öllu óheimilt að hafa farsíma í sínum fórum. Ekki sé alltaf tilefni til að ætla að farsímar í fórum fanga séu notaðir í brotastarfsemi. „Það er nú ekki samband á milli þess að vera með farsíma og að stunda einhverja brotastarfsemi, það geta annars konar ástæður legið þarna að baki, eins og að eiga samskipti við ættingja eða eitthvað þess háttar, en þetta virðist vera af öðrum toga,“ segir Birgir.