Tottenham rekur Thomas Frank

Thomas Frank hefur verið rekinn sem stjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham Forest. Daninn tók við liðinu síðasta sumar eftir sjö ár hjá Brentford. Þar áður þjálfaði hann Brøndby í heimalandinu og yngri landslið Danmerkur. Tottenham er sem stendur í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, 5 stigum frá fallsvæðinu. Síðasti sigurleikur í deildinni var gegn Crystal Palace 28. desember. Þá er liðið dottið úr leik í FA-bikarnum en gengið í Meistaradeild Evrópu hefur reyndar verið stórgott í vetur og endaði liðið í fjórða sæti í deildarkeppninni. Það kemur því inn í 16-liða úrslitum keppninnar. Samkvæmt veðbönkum þykir Ítalinn Roberto De Zerbi líklegastur til að taka við liðinu en hann hætti með Marseille í gær. Mauricio Pochettino, fyrrum stjóri Tottenham, er einnig orðaður við starfið sem og Xavi og Robbie Keane, fyrrum leikmaður liðsins.