Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði í gær kröfu íbúa í Rangárþingi ytra sem vildi að nefndin ógilti leyfisveitingu vegna breytinga á Miðgarði í Gunnarsholti. Breyta á húsinu til að koma þar upp meðferðarheimili fyrir fjórtán til átján ára drengi. Í húsinu voru áður höfuðstöðvar Landgræðslu Íslands og þarf að breyta því til að hægt sé að bjóða upp á langtímameðferð fyrir drengi sem lokið hafa greiningu og meðferð á Stuðlum í Reykjavík. Nágranni fyrirhugaðs meðferðarheimilis sagði að þarna yrði úrræði fyrir drengi sem glímdu við alvarlegan vanda á borð við vímuefnaneyslu, ofbeldi, afbrot, skóla- og námserfiðleika og sálfélagslegan vanda. Hann sagði að starfsemin félli ekki að þeirri stefnu sem sveitarfélagið hefði sjálft markað fyrir svæðið og að húsnæðið hentaði ekki undir starfsemina, meðal annars vegna brunavarna. Auk þess sagði maðurinn að ekki lægi fyrir sjálfstæð áhættugreining á því hvernig tryggja ætti öryggi vistmanna, starfsmanna og nágranna. Sveitarfélagið hafnaði þessu og sagði notkun hússins í samræmi við brunahönnun og skilgreinda notkunarflokka í byggingareglugerð. Þá stæði ekki til að þarna yrði neyðarvistunarúrræði heldur aðeins úrræði fyrir þá sem hefðu lokið greiningu og meðferð á Stuðlum. Fulltrúar Rangárþings ytra sögðu að ekki væri brotið gegn grenndarrétti, friðhelgi heimilis og eignarrétti kærandans. Úrskurðarnefnd sagði að þrátt fyrir að almenn stefnumið um notkun svæðisins væri að finna í aðalskipulagi væru þau ekki svo bindandi eða skilmálar þeirra svo tæmandi að það girti fyrir aðra starfsemi sem talin verði til samfélagsþjónustu. Nefndin hafnaði einnig rökum um að húsnæðið uppfyllti ekki skilyrði um brunavarnir og hönnun. Kröfu nágrannans var því hafnað.