Móðir bandarísku sjónvarpskonunnar Savannah Guthrie, er enn leitað. Hún hvarf af heimili sínu í Tuscon í Arizona í Bandaríkjunum fyrir rúmri viku. Yfirvöld telja að henni hafi verið rænt. Ekkert hefur spurst til Nancy Guthrie, sem er 84 ára, frá 29. janúar. Tilkynnt var um hvarf hennar 1. febrúar þegar hún kom ekki til sunnudagsmessu sem hún var vön að sækja. Átti við öryggismyndavélar Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, birti fyrr í dag myndir úr eftirlitsmyndavélum við heimili Guthrie. Á þeim sést grímuklæddur maður við innganginn að heimili hennar. Maðurinn virðist hafa átt við öryggismyndavélar. FBI hefur tekist að endurheimta hluta efnisins. Ekki hafa verið borin kennsl á manninn sem er talinn hafa verið vopnaður. Alríkislögreglan leitar nú til almennings og 50.000 dollara verðlaunafé býðst þeim sem getur veitt frekari upplýsingar. Savannah Guthrie, dóttir Nancy Guthrie, er sjónvarpskona hjá NBC í Bandaríkjunum. Í mynbandi sem fjölskylda hennar birti 5. febrúar les hún upp yfirlýsingu frá sér og systkinum sínum og biður meinta ræningja móður sinnar að hafa samband við fjölskylduna. Einnig biður hún um haldbærar sannanir fyrir því að móðir hennar sé enn á lífi. Engin svör hafa enn borist. Nancy Guthrie er á lyfjum við háum blóðþrýstingi og getur ekki hreyft sig mikið án aðstoðar. Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að hún virðist ekki hafa farið sjálfviljug út af heimilinu. Lögregla bindur vonir við að endurheimt frekari myndbanda úr öryggismyndavélinni við húsið varpi skýrara ljósi á atburði kvöldsins.