Mikið tjón varð af völdum óveðursins.EPA / NUNO VEIGA María Lucia Amaral, innanríkisráðherra Portúgals, sagði af sér í gær eftir gagnrýni á viðbrögð innanríkisráðuneytisins og ríkisstjórnarinnar við óveðri og flóðum undanfarnar vikur. Að minnsta kosti sjö fórust og óveðrið olli tjóni sem talið er að nemi um fjórum milljörðum evra. Forsætisráðherra landsins, miðju-hægrimaðurinn Luis Montenegro, fyllir tímabundið í skarð Amaral.