Kalla ekki til matsmenn vegna varnargarða

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur fallið frá beiðni sinni um að matsmenn verði dómkvaddir til að meta hve miklum verðmætum varnargarðarnir við Grindavík og Svartsengi hafa bjargað. Í stað þess hefur Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) boðist til að afla sérfræðiálits um gagnsemi varnargarðanna. Frá þessu segir á vef Stjórnarráðsins . Lagt verður mat á hvaða hagsmunum hafi verið bjargað með gerð þeirra og hvernig slík skipulögð forvörn geti dregið úr tjónskostnaði í hamförum af sama toga. Leitað verður til sérfræðinga hér á landi auk jarðvísindafræðinga af vettvangi alþjóðlegra endurtrygginga með sérfræðiþekkingu á áhættuútreikningum. Áætlaður kostnaður við varnargarðana er um ellefu milljarðar króna en áætlað er að þeir hafi bjargað verðmætum, mannvirkjum og rekstri fyrir mun meira fé. Ráðuneytið vill að þeir sem nutu góðs af borgi Síðasta sumar fór ráðuneytið að skoða hvort þeir sem hefðu tryggt hagsmuni sína á svæðinu ættu mögulega að taka þátt í kostnaðinum. Orkufyrirtækið HS Orka og NTÍ fengu í lok júní 2025 bréf frá lögmanni ráðuneytisins þar sem þeirri skoðun var lýst að þeir sem hefðu notið góðs af þessum aðgerðum ættu að borga. HS Orka og NTÍ töldu að þessi hugmynd ríkisstjórnarinnar skorti stoð í lögum og stefndi í dómsmál. Þar sem NTÍ framkvæmir matið hefur þó verið fallið frá þeirri ákvörðun að dómkvaddir matsmenn meti þá hagsmuni sem bjargað var með byggingu varnargarðanna. Gert er ráð fyrir því að staðan verði endurmetin þegar álit sérfræðinga á vegum NTÍ liggur fyrir.