Þrjú börn drepin í árás á Bohodukhiv í Úkraínu

Þrjú börn, tveir ársgamlir drengir og tveggja ára stúlka, og karlmaður létu lífið í árásum Rússa á borgina Bohodukhiv í Kharkiv-héraði í Úkraínu í gær. Kona á áttræðisaldri og barnshafandi kona á fertugsaldri særðust. Rússneskar hersveitir hafa aukið árásir í Kharkiv-héraði undanfarið, sér í lagi á samgöngu- og orkuinnviði. Samkvæmt eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi í Úkraínu hafa 15.000 almennir borgarar verið drepnir í Úkraínu frá því að innrás Rússa hófst fyrir hartnær fjórum árum. Mannfall í fyrra var það mesta á einu ári frá því að innrásin hófst, yfir 2.500 voru drepnir.