Vonar að framboð á fíkniefnamarkaði dragist saman

Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur og staðgengill lögreglustjóra á Suðurnesjum, vonar að framboð fíkniefna á íslenskum markaði hafi dregist saman. Í síðustu viku upprætti lögreglan fíkniefnahring sem smyglaði miklu magni kókaíns milli landa. 24 voru handteknir í aðgerðum lögreglu í síðustu viku, þar á meðal ellefu á Íslandi. Lögreglan á Suðurnesjum hefur unnið að rannsókn málsins í tæpt ár. Rannsóknin náði hámarki með handtökunum. Lögreglan hefur notið aðstoðar Europol og Eurojust, stofnunar Evrópusambandsins um samstarf við baráttu gegn glæpum. Fluttu inn nokkrar tegundir af fíkniefnum Alda Hrönn segir að efnin hafi borist til landsins með ýmsum leiðum. Með burðardýrum og pakkasendingum en líka vandlega falin í gámum og bílum sem voru flutt til landsins. Einn og sami hópurinn hafi staðið að innflutningnum sem fól í sér nokkrar tegundir fíkniefna, ekki einungis kókaín. Í fimm af níu fangaklefum sem leitað var í á Litla-Hrauni í sameiginlegum aðgerðum lögreglu á Íslandi og Europol fundust símtæki hjá sakborningum í málinu, sem annaðhvort sitja í gæsluvarðhaldi eða sitja af sér dóma vegna annarra mála. Alda Hrönn segir það vonbrigði. Sakborningar geti nýtt sér símtæki meðal annars til að sammælast um framburð í yfirheyrslum lögreglu. „Það eru náttúrulega þá meiri líkur á að starfsemin sem slík geti haldið áfram og líka að aðilar geti þá sammælst og borið sig saman um hvað þeir ætli að segja og hvernig þeir ætla að segja það.“