Aumingja sölu­maðurinn og vonda vísinda­fólkið

Mikið var ég feginn að lesa fréttirnar í vikunni. Loksins steig einhver fram og sagði hlutina eins og þeir eru. Ég á auðvitað við Elías Blöndal Guðjónsson hjá Santé, sem tók af skarið og skammaði „hina sprenglærðu“ Láru G. Sigurðardóttur fyrir að vera með leiðindi.