Evrópuþingið staðfestir lánapakka til Úkraínu

Evrópuþingið samþykkti í dag stuðningspakka Evrópusambandsins til Úkraínu – lán upp á 90 milljarða evra. 60 milljörðum verður varið til varna Úkraínu á þessu ári og því næsta. 30 milljarðar fara í að styðja við fjárhag ríkisins sem hefur liðið mikið síðan Rússland gerði allsherjarinnrás í landið fyrir rétt tæpum fjórum árum. Leiðtogaráð ESB samþykkti lánið fyrir sitt leyti í desember og framkvæmdastjórn sambandsins skilaði útfærslu í janúar. Tékkland, Slóvakía og Ungverjaland taka ekki þátt í lánveitingunni en hin 24 aðildarríkin eru með. Lánið er háð ýmsum skilyrðum, meðal annars því að lýðræði og réttarríkið verði í hávegum haft, staðið verði vörð um mannréttindi líkt og réttindi minnihlutahópa, og loks að haldið verði áfram að styrkja lýðræðislegar stofnanir landsins og barist verði gegn spillingu. Samkvæmt tilkynningu frá Evrópuþinginu verður lánið endurgreitt þegar Úkraína fær í sinn hlut stríðsskaðabætur frá Rússlandi. Lánið var samþykkt með 458 atkvæðum gegn 140. 44 Evrópuþingmenn sátu hjá.