Frost um allt land og él norðan og austan til

Það verður frekar napurt í dag með frosti um allt land, að sjö stigum þar sem kaldast verður. Áfram er útlit fyrir él norðan- og austanlands en léttskýjað verður sunnan heiða. Víða er snjóþekja á vegum á norðan- og austanverðu landinu og hálka eða hálkublettir á vegum um land allt. Norðaustan fimm til þrettán metrar á sekúndu og dálítil él norðan- og austanlands en léttskýjað sunnan heiða. Norðlæg átt, 3-8 metrar á sekúndu, á morgun en 8-13 austast á landinu. Stöku él á Norður- og Austulandi en bjart að mestu sunnan og vestan til. Líkur á dálitlum éljum syðst eftir hádegi. Frost 2-7 stig að deginum.