Sprenging á Reyðarfirði mældist á jarðskjálftamælum

Öflug sprenging skaut Reyðfirðingum skelk í bringu í gærkvöld. Hús nötruðu og skjálfti kom fram á mælum. Íbúi segir kurteisi að láta fólk vita áður en sprengt sé í efnisnámu nærri útivistarsvæði. „Klukkan var nákvæmlega 18.31 samkvæmt jarðskjálftamælum. Þá erum við á göngu þarna og heyrum greinilega sprengingu. Við upplifðum hana talsvert nálægt okkur. Jörðin hristist og mikill kraftur í henni,“ segir Anna Berg Samúelsdóttir náttúru- og landfræðingur sem býr á Reyðarfirði. Óttuðust að eitthvað hefði komið fyrir í álverinu Þau hafi ákveðið að haska sér í burtu eins og hún orðar það enda hafi gripið þau óhugur. „Hundurinn varð mjög hræddur. Fyrstu viðbrögð voru að það hefði eitthvað gerst úti í álveri og þá kom svona virkilega þungur óhugur í mann. Hvort það hefði orðið einhver sprenging þar því að það getur verið svo gríðarlega alvarlegt mál. En svo fórum við að finna svona sérkennilega lykt. Svolítið eins og af jarðvegi og þá fór okkur að gruna að þetta hefði nú kannski verið framkvæmd í námu eða á athafnasvæði,“ segir Anna Berg. Frekari sprengingar í dag og á morgun Fjarðabyggð segir að Nestak hafi sprengt í efnisnámu vestan við álverið með leyfi sveitarfélagsins. Fyrirtækið segir að það verði líka sprengt í dag og á morgun klukkan 17. Þarna hafi verið sprengt annað slagið síðan í sumar. Fjarðabyggð taldi ekki ástæðu til að setja upp hljóðmerkjakerfi eða vera með viðbúnað vegna fjarlægðar frá íbúabyggð. Lögreglan á Austurlandi fékk tilkynningu frá íbúum um sprenginguna og fer yfir leyfismál og framhald á verkinu. Ekki má sprengja nema með leyfi lögreglustjóra og uppfylla þarf önnur skilyrði í reglugerð. Kurteisi að vara íbúana við Anna Berg skrifaði um sprenginguna á Facebook og fékk viðbrögð frá öðrum Reyðfirðingum. „Það eru einhverjir sem hafa fundið fyrir þessu hér inni í bæ, fundið fyrir hristingi inni í húsi. Samkvæmt Veðurstofunni og jarðskjálftamælum þá er þetta 1,4 stig. Ef sprenginga er þörf vegna framkvæmda þá er eðlilegasti hlutur að láta íbúa vita svo að við getum valið okkur önnur svæði til að stunda útivist. Það er bara eðlileg kurteisi og mannasiðir ef það eru framkvæmdir sem geta hreyft við okkur íbúunum,“ segir Anna Berg. Hún hefur skoðað námuna á kortasjá og segir hana í um 500 metra fjarlægð frá gönguslóðanum þar sem þau voru. 230 metrar eru í þjóðveginn og 2,2 kílómetrar í ystu húsin í bænum.