Bandaríski listskautakappinn Ilia Malinin hefur vakið athygli fyrir afturábak heljarstökk á skautasvellinu á vetrarólympíuleikunum, stökk sem var bannað í 50 ár. Enn meiri athygli vekur að engin stig fást fyrir stökkið hættulega. Malinin er 21 árs bandarískur listskautari sem er að keppa á sínum fyrstu ólympíuleikum. Hann skaust upp á stjörnuhimininn fyrir þremur árum þegar hann varð fyrstu í sögunni til að lenda stökki sem nefnist fjórfaldur Axel. Stökkið var talið nær ógerlegt en nú hafa fleiri skautarar leikið það eftir. Malinin tryggði Bandaríkjamönnum gull í liðakeppni en mesta athygli vakti þegar hann framkvæmdi afturábak heljarstökk sem hefur verið bannað í 50 ár sökum þess hve hættulegt það er. Ásdís Rós Clark, íþróttastjóri listskautadeildar Skautafélags Reykjavíkur, segir ríkar ástæður fyrir því að stökkið var bannað á sínum tíma. „Fólk vill í rauninni bara ekki að börn séu að æfa þetta,“ sagði Ásdís í Morgunútvarpinu á Rás 2. Glæfralegt heljarstökk, sem var bannað í hálfa öld, hefur vakið athygli á skautasvellinu á Vetrarólympíuleikunum. Stökkið tryggir ekki verðlaun því engin stig fást fyrir framkvæmdina. Ásdís hefur sjálf keppt listskautum, þjálfað og dæmt á alþjóðlegum vettvangi. „Á skautum erum við að snúast í kringum okkur sjálf en að fara aftur á bak á skautasvelli sem er á steyptri plötu, það segir sig sjálft að það er stórhættulegt þegar kemur að höfuðmeiðslum. Við erum ekki með hjálma eða ekki neitt.“ Stökkið var leyft aftur í keppni fyrir tveimur árum til að auka vinsældir keppnisgreinarinnar. Engin stig fást fyrir að framkvæma stökkið. „Þeir hafa alveg nokkrir verið að gera þetta í sýningum í gegnum árin. Í rauninni hafa ekki margar konur gert þetta. Það var ein þekkt kona sem framkvæmdi þetta á Ólympíuleikunum, Surya Bonaly, 1998. Það var líka flex hjá henni, því að þá mátti þetta ekki. Hún var að senda skilaboð því hún var svört kona í mjög hvítu samfélagi,“ segir Ásdís. Þó að stökkið gefi ekki stig undirstrikar það hversu góður keppandinn er, og Malinin hikar ekki við að sýna snilli sína. Hann stígur næst út á ísinn á föstudag.