Brjánslækjarkirkja er friðuð timburkirkja, sem byggð var árið 1908. Höfundur kirkjunnar var Rögnvaldur Ólafsson arkitekt. Kirkjan er einlyft með forkirkju og turni beint upp af henni og stendur á steyptum grunni. Þakið er krossreist og á turni er tvískipt píramídalaga þak, sem klætt er sléttu járni. Kirkjan tekur 50 manns í sæti. Veggir kirkjunnar eru […]