„Matarhátíðin Food and Fun 2026 hefst 25. febrúar næstkomandi og stendur yfir til 1. mars. Þetta verður ein öflugasta útgáfa hátíðarinnar til þessa. Við erum að fá til landsins sterkasta hóp gestakokka sem við höfum nokkru sinni fengið, matreiðslumeistara sem eru með Michelin-stjörnur við nöfnin sín og eru stórstjörnur úr sínum bransa,“ segir Ólafur Hall framkvæmdastjóri Food and Fun.