Ríður á að standa vörð um landsvæði NATO-ríkja í norðri

Norðurslóðir gegna sífellt mikilvægara hlutverki í sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins, NATO, sagði Mark Rutte, framkvæmdastjóri bandalagsins, á fundi í Brussel í dag. Aðild Svíþjóðar og Finnlands frá 2022 hafi styrkt stöðu NATO á svæðinu. Engu að síður sé nauðsynlegt, í ljósi aukinna hernaðarumsvifa Rússlands og aukins áhuga Kína á norðurslóðum, að bandalagið láti meira til sín taka. Þess vegna hafi verkefninu Arctic Sentry verið hleypt af stokkunum í dag. Arctic Sentry, sem gæti útlagst „Varðstaða á norðurslóðum“, á einkum að efla árvekni, vöktun og eftirlit á svæðinu. Hún felur í sér aukna viðveru herskipa og eftirlitsflugvéla þótt ekki sé gert ráð fyrir að fjölga mannskap eða búnaði, heldur að nýtt verði betur en nú er gert. Rutte sagði að Arctic Sentry sameini allt það sem NATO og bandamenn geti fært fram í heimshlutanum, undir einum hatti. Fyrstu verkefnin verða æfingar á vegum Danmerkur annars vegar og Noregs hins vegar. „Með því ætti að vera ljós áhersla okkar á að tryggja öryggi á norðurslóðum og öryggi alls bandalagsins í heild.“ Rutte sagði að það dyldist engum að Rússland og Kína væru sífellt að reyna að ryðja sér til rúms á Norðurheimskautssvæðinu. „Við metum það sem svo að það sé raunveruleg ógn. Héðan í frá, miðað við það sem við höfum séð hingað til, eru siglingaleiðir að opnast. Það mun aukast og því ríður á að við stöndum vörð um þetta veigamikla landsvæði NATO.“