Svar við “Bréf til Láru”

Í „Bréfi til Láru“ er talað um frelsi og einstaklingsábyrgð. Þetta hljómar vel því flest okkar lítum á þessa þætti sem hornsteina góðra samfélaga. En þegar samhengið er skoðað sést að hér leynist úlfur í sauðagæru: áfengi er ekki venjuleg neysluvara og afleiðingarnar eru ekki einkamál þeirra sem drekka.