Breiðablik tapaði 7-0 í Evrópubikarnum

Íslandsmeistarar Breiðabliks léku síðdegis fyrri leik sinn gegn sænska liðinu Häcken í 8-liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í fótbolta og var leikið í Gautaborg. Þessi Evrópukeppni er nú haldin í fyrsta sinn og teygir sig yfir langt hlé á þessu fordæmalausa keppnistímabili fyrir Blika sem hafa misst marga leikmenn frá því Íslandsmeistararnir unnu danska liðið Fortuna Hjørring í 16-liða úrslitunum í nóvember sl. Nýtt þjálfarateymi er tekið við Blikum og miklar breytingar orðið á leikmannahópnum. Hræðilegur 15 mínútna kafli í fyrri hálfleik gerði svo gott sem út um þetta einvígi fyrir Blika því frá 25. mínútu skoraði sænska liðið fimm mörk á fimmtán mínútum. Thelma Karen Pálmadóttir skoraði fimmta mark Häcken á 40. mínútu og Fanney Inga Birkisdóttir er markvörður sænska liðsins. 5-0 var staðan í hálfleik og Häcken bætti aðeins tveimur mörkum við í seinni hálfleik. Litlu munaði að Häcken ynni leikinn 8-0 en Herdís Halla Guðbjartsdóttir markvörður Blika varði vítaspyrnu á 82. mínútu. Seinni leikur liðanna verður á Kópavogsvelli eftir viku, 18. febrúar.