Áfram héldu ólympíumeistaratitlarnir að hrannast inn á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag. Ekkert lát er á velgengni Svisslendingsins Franjo von Allmen í brekkunni. Von Allmen vann nokkuð óvænt gullverðlaun í bruni karla um helgina og fékk svo líka gullverðlaun í alpatvíkeppni í upphafi vikunnar. Í dag var keppt í risasvigi sem Von Allmen fór á 1 mínútu og 25.32 sekúndum og stóð uppi sem ólympíumeistari Marco Odermatt, samlandi von Allmen sem verið hefur besti skíðamaður heims undanfarin ár, var enn að reyna við sín fyrstu gullverðlaun á þessum leikum en hann varð að sætta sig við bronsið. Odermatt kom í mark 0,28 sekúndum á eftir von Allmen en Bandaríkjamaðurinn Ryan Siegle-Cochran náði silfrinu, 0,13 sekúndum á eftir Allmen. Franjo von Allmen, sem er 24 ára, er aðeins þriðji skíðamaðurinn til að vinna þrenn ólympíugullverðlaun í alpagreinunum á sömu leikunum og sá fyrsti síðan 1968 þegar Jean-Claude Killy gerði það. Ólympíumet í skautaspretti Í 1000 metra skautaspretti litu flestir á Bandaríkjamanninn Jordan Stolz sem manninn sem þyrfti að sigra en hann hafði tvívegis orðið heimsmeistari í greininni. Stolz gekk frábærlega á svellinu og skautaði í mark á tímanum 1:06,28 mínútum. Það var ekki bara besti tími dagsins heldur setti hann nýtt Ólympíumet í greininni. Stolz fagnaði vel og innilega en þetta voru hans fyrstu verðlaun á Ólympíuleikum. Vann upp 28 sekúndur og tók sjöundu gullverðlaun Noregs Í norrænni tvíkeppni er byrjað á því að stökkva af venjulegum stökkpalli og svo er ræst út í 10 kílómetra skíðagöngu. Kristjan Ilves frá Eistlandi átti besta stökkið og fékk 132,6 stig. Næstir á eftir honum komu Thomas Rettenegger frá Austurríki og Japaninn Ryota Yamamoto og ræstu þeir út 15 og 19 sekúndum á eftir Ilves. Jens Lurås Oftebro frá Noregi fékk 125,6 stig fyrir stökkið og fór út í brautina 28 sekúndum á eftir Ilves. Oftebro náði að ganga uppi fremstu menn og kom fyrstur í mark og tryggði Noregi sín sjöundu gullverðlaun á leikunum. Johannes Lamparter frá Austurríki endaði í öðru sæti sekúndu á eftir Oftebro og Eero Hirvonen tók bronsið. Gullið til Ítalíu í baksleða kvenna Í tveggja manna baksleða kvenna var það ítalska parið Andrea Voetter og Marion Oberhofer sem náðu besta tíma dagsins í báðum ferðum. Þær urðu heimsmeistarar í greininni árið 2024 og sýndu mikla yfirburði í brautinni í dag sem endaði með þeirra fyrstu verðlaunum á Ólympíuleikum. Fyrstu einstaklingsgullverðlaun Simon Í dag var svo komið að konunum í skíðaskotfiminni en grein dagsins var 15 kílómetra ganga með fjórum skotseríum. Hin franska Julia Simon vann þar sín fyrstu einstaklingsgullverðlaun á Ólympíuleikum en hún hafði áður unnið gull með frönsku sveitinni í 4x6km boðgöngunni. Þar var Lou Jeanmonnot liðsfélagi hennar og hún bætti silfri í safnið í dag. Þriðja varð svo Lora Hristova frá Búlgaríu.