Settur rektor Háskólans á Bifröst segir að brúa þurfi þær gjár sem myndast hafa vegna deilna innan skólans. Næstu skref séu að halda daglegum rekstri áfram og ganga sameiginlega til starfa. Margrét Jónsdóttir Njarðvík sagði af sér sem rektor Háskólans á Bifröst í Kastljósi á mánudag eftir nærri mánaðarlanga gagnrýna umfjöllun um hana og stjórnarhætti hennar í fjölmiðlum. Kennarar höfðu sakað Margréti um eins konar ógnarstjórn og einræðistilburði í skólanum. Leyfir sér að vera bjartsýn og vona það besta Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir hefur verið settur rektor í stað Margrétar. Hún segir ótímabært að segja til um hver eftirköstin af deilunum verði en hún leyfi sér að vera bjartsýn og vona það besta. Næstu skref séu að útskrifa 58 nemendur næstu helgi og síðan haldi daglegur rekstur háskólans áfram. „En hins vegar er alveg ljóst að það eru líka ákveðnar gjár sem hafa myndast innan skólans sem er bara verkefnið okkar framundan að brúa og ganga sameiginlega til þeirra starfa og þess hlutverks sem okkur er skylt að uppfylla og vera sú fyrirmynd sem okkur ber að vera sem háskólasamfélag,“ segir Ólína. Segir skólann standa á traustum grunni Hún segir ekki hennar að svara hvort umræddar deilur hafi möguleg áhrif á orðspor Bifrastar eða aðsókn í skólann. Skólinn standi á traustum grunni. „Auðvitað hefur maður áhyggjur þegar umfjöllun af þessu tagi er búin að fara hátt í fjölmiðlum og þegar fólk hefur kosið að stíga til hliðar. Hér er frábært starfsfólk. Fólk sem ég ber virðingu fyrir og treysti og ég hef fulla trú á því að sameinuð muni okkur takast að leiða þetta allt saman farsællega til lykta.“