Á Sviðinu á Selfossi fór um síðustu helgi fram þungarokkshátíðin Hellfoss í fyrsta sinn. Sex hljómsveitir spiluðu á föstudagskvöld og aðra sex á laugardagskvöld. Dagskráin stóð frá 19.00 til miðnættis bæði kvöldin og það seldist upp á bæði kvöldin fyrir helgina. Á Hellfoss spiluðu sveitir eins og Auðn – Dr. Spock – Mysþirmning -Bastarður - Volcanova – Forgaður Helvítis – Une Misere og fleiri og allt var upp á 10. Rokkland heimsótti Hellfoss á föstudagskvöldið og spjallaði við Rúnar Hroða Geirmundsson sem er maðurinn á bakvið Hellfoss, og líka þá Finna á Prikinu, Óttar Proppé úr Dr. Spock og Sigga Pönk úr Forgarði Helvítis og Smára Tarf gítarleikara.