Hæstiréttur hefur staðfest dóm yfir móður sem dæmd var í 18 ára fangelsi fyrir að ráða sex ára syni sínum bana og reyna að svipta ellefu ára son sinn lífi í janúar 2024. Einn dómari við Hæstarétt skilaði sératkvæði og telur refsingu hæfilega fimmtán ár.