Man City, Aston Villa og Liverpool með sigra

Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Manchester City vann 3-0 sigur á Fulham og minnkaði forystu Arsenal á toppnum niður í þrjú stig en Arsenal á leik til góða. Manchester City's Antoine Semenyo, left, celebrates after scoring the opening goal during the English Premier League soccer match between Manchester City and Fulham in Manchester, England, Wednesday, Feb. 11, 2026. (AP Photo/Dave Thompson)AP / Dave Thompson Liverpool vann 1-0 útisigur á Sunderland þar sem Virgil van Dijk skoraði sigurmarkið á 61. mínútu. Liverpool er í 6. sæti með 42 stig, tveimur stigum á eftir Chelsea og þremur stigum á eftir Man Utd sem eru í sætunum fyrir ofan. Aston Villa vann mikilvægan sigur á Brighton 1-0 og heldur áfram að elta toppliðin. Aston Villa er í þriðja sæti, þremur stigum á eftir City. Önnur úrslit Aston Villa - Brighton 1-0 Crystal Palace - Burnley 2-3 Nott. Forest - Wolves 0-0