Upp­lausn á Vopna­firði: Starfs­lok sveitar­stjórans, odd­viti hættir og rifist á fundum

Á einni viku má segja að öllu hafi verið snúið á hvolf hjá sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps. Samið var um starfslok sveitarstjórans, í kjölfarið hætti oddviti meirihlutans og nú hefur sveitarstjórnarfulltrúi ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi kosningum eftir að oddviti minnihlutans gerði athugasemd við að hún talaði ensku.