Stjórn Arion banka leggur til arðgreiðslu sem nemur 11,5 krónum á hlut sem jafngildir 15,3 milljörðum króna. Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum bankans var 30,6 milljarðir króna á árinu 2025, samanborið við 26,1 milljarð króna 2024. Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum bankans var 14,9 prósent, samanborið við 13,2 prósent 2024. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri afkomutilkynningu bankans. Þar segir ennfremur að starfsemi Arion samstæðunnar hafi gengið vel á árinu. Arðsemi eiginfjár hafi verið umfram markmið og tekjur af kjarnastarfsemi bankans í takt við væntingar. Arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum bankans var 6,2 milljarðir króna á fjórða ársfjórðungi 2025, samanborið við 8,3 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2024. Þá var arðsemi eiginfjár sem tilheyrir hluthöfum bankans 11,6 prósent en 8,3 milljarðir króna á fjórða ársfjórðungi 2024. Hreinar þjónustutekjur námu 4,1 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2025, líkt og á fjórða ársfjórðungi 2024. Þá segir að efnahagsreikningur bankans hafi stækkað um 1,1 prósent á fjórðungnum. Viðræður um sameiningu enn í gangi Stjórnir félaga Arion banka og Kviku banka samþykktu í fyrra að ganga til samrunaviðræðna og segir í tilkynningunni að forviðræður við Samkeppniseftirlitið standi nú yfir. Verði niðurstaða þeirra jákvæð verði formlegt erindi sent eftirlitinu. Í tilefni af fyrirhuguðum arðgreiðslum hafi félögin undirritað viðauka við áformabréf um samrunann, þar sem gert er ráð fyrir að skiptihlutföll í samrunanum verði aðlöguð til samræmis við arðgreiðslurnar þannig að efnahagslegar forsendur samrunans, eins og þær lágu til grundvallar við undirritun bréfsins, raskist ekki.