Hitafundur fimm stéttarfélaga sem starfa á bráðamóttöku Landspítalans var haldinn á Grand hótel í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem öll stéttarfélögin koma saman til að ræða stöðu bráðamóttökunnar. Formenn félaganna segja að staðan hafi aldrei verið jafn slæm og nú, berklasmit sem nýverið greindist hjá átta starfsmönnum væri afleiðing óviðunandi vinnuaðstæðna. Smitaðist sjálfur af berklum Atli Dagur Sigurðsson, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans, var einn þeirra starfsmanna sem smituðust af berklum. Hann segir að fjöldi smitaðra hafi ekki komið á óvart miðað við hve slakar sýkingarvarnir bráðamóttökunnar eru. „Það eru engar sýkingavarnir á bráðamóttöku. Fólk liggur á göngunum með alls konar smitsjúkdóma, veirupestir og annað.“ Hitafundur félaga í fimm stéttarfélögum sem starfa á bráðamóttöku Landspítalans var haldinn í dag. Starfsfólk bráðamóttöku segir að ástandið sé óviðunandi, sýkingavarnir séu litlar sem engar og almennt hafi álagið aukist með árunum. Atli segir sjálfur að frá því að hann hóf störf hafi ástandið bara versnað, því sé í raun hægt að lýsa sem stríðsástandi. Sjálfur myndi hann ekki vilja vera sjúklingur á bráðamóttökunni, starfsmenn afsaki ástand bráðamóttökunnar í sífellu við sjúklinga. „Maður á þetta samtal við sjúklinga á hverjum einasta degi. Og maður er alltaf að biðjast afsökunar.“ Óboðlegt ástand Aron Palomares, sérnámslæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir starfsfólk reyna sitt besta en að ástandið sé slæmt og vinnuaðstæður krefjandi. Aron segir að nýlega hafi sjúklingar í óráði gert áform um að strjúka af bráðamóttöku vegna ástandsins; engin rúm né stólar séu lausir og sjúklingar sem ættu að vera inniliggjandi á legudeildum séu á bráðamóttökunni. Sandra Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, segir að mikilvægast sé að hafa trú á því að stefnt sé í rétta átt, starfsmenn séu með hugmyndir að lausnum sem skipti máli inn í samtalið við stjórnvöld.u Landspítalans, segir starfsfólk reyna sitt besta en að ástandið sé slæmt og vinnuaðstæður krefjandi.