Pentagon ber að nýta rafmagn frá kolabrennsluverum

Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í gær tilskipun um að varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, Pentagon, eigi að kaupa rafmagn frá kolabrennsluverum. Trump tilkynnti um þessa ákvörðun í Hvíta húsinu fyrr í kvöld og sagði að kol væru nauðsynleg fyrir þjóðaröryggið. Rafmagn frá kolabrennsluverum yrði nýtt á bandarískum herstöðvum og myndi tryggja ótruflaða notkun á grunnrafmagnsþörf. Fulltrúar bandarískra kolanámumanna voru viðstaddir og veittu Trump bikar af þessu tilefni og hömpuðu honum fyrir að vera öflugan talsmann kola. Trump hefur verið ötull stuðningsmaður kolavinnslu síðan hann var endurkjörinn sem Bandaríkjaforseti á síðasta ári. Í apríl síðastliðnum skrifaði Trump undir lög til að efla kolaiðnaðinn og tvöfaldaði rafmagnsframleiðslu til að halda í við Kína í kapphlaupinu um gervigreindartækni sem er orkufrek. Trump stefnir á að fella niður stefnur í umhverfismálum sem forverar hans Barack Obama og Joe Biden settu á í sinni forsetatíð. Á fimmtudaginn er búist við því að Trump felli úr gildi reglugerðir sem byggja á vísindarannsóknum sem sýndu fram á að gróðurhúsalofttegundir séu lýðheilsuspillandi. Þessar rannsóknir eru grunnurinn að bandarískum reglugerðum sem er ætlað að draga úr mengun af völdum gróðurhúsalofttegunda.