Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að halda leiðtogafund fyrir stjórnmálaleiðtoga nokkurra ríkja Mið- og Suður-Ameríku í Miami á Flórída í mars, eftir því sem AFP fréttastofan hefur eftir ónafngreindum embættismanni í Hvíta húsinu. Meðal leiðtoga sem verður boðið eru forsetar Argentínu, El Salvador, Paragvæ, Bólivíu og Hondúras. Endanlegur gestalista fyrir leiðtogafundinn liggur þó ekki fyrir, né heldur hvort leiðtogum fleiri landa í Mið- og Suður-Ameríku veðri boðið. Forsetar Brasilíu, Kólumbíu og Mexíkó eru helstu vinstrisinnuðu leiðtogar álfunnar og hafa fram til þessa átt í misgóðum samskiptum við Bandaríkjaforseta. Hvíta húsið hefur ekki greint frá tilefni leiðtogafundarins en argentískur fjölmiðill hefur sagt að efni fundarins verði hvernig hægt sé að sporna við áhrifum Kína í álfunni. Bandaríkjastjórn, undir stjórn Trumps, hefur reynt að endurheimta yfirráð sín í álfunni og reynt að draga úr áhrifum kínversks iðnaðar með tollum og viðskiptastríði.