Úkraínski herinn gerði einnig drónaárás á aðra vopnaframleiðslustöð í borginni Michurinsk í Tambov-héraði í nótt, samkvæmt frétt Kyiv Independent. Tveir slösuðust í árásinni og margar byggingar eyðilögðust í árásinni. Michurinsk er 347 kílómetra frá landamærum Úkraínu og Rússlands. Úkraínuher hefur áður ráðist á umrædda vopnaframleiðslustöð, í júní á síðasta ári og í desember 2024, en þar eru framleidd hátækni flug- og eldflaugastjórunarkerfi, auk búnaðar fyrir gas- og olíuleiðslur. Þá kviknaði eldur kviknaði í vopnabirgðageymslu rússneska hersins í drónaárás úkraínska hersins, nærri þorpinu Kotluban í Volgograd-héraði í kvöld. Íbúar voru fluttir á brott vegna hættu á sprengingum, samkvæmt færslu sem ríkisstjóri Volgograd, Andrey Bocharov, segir í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum Telegram í kvöld. Miklar eldflauga- og drónaárásir hafa verið í Kyiv, höfuðborg Úkraínu í nótt. Miklar sprengingar heyrðust í borginni og víða er rafmagnslaust samkvæmt fréttamiðlinum Kyiv Independent. Ekki liggur fyrir hvort einhverjir hafi látið lífið eða slasast í árásunum eða hvort byggingar eða innviðir hafi verið eyðilögð.