Um 59% þátttakenda í könnun á viðhorfum Grindvíkinga segja andlega heilsu sína verri en fyrir rýmingu í Grindavík og 51% segir líkamlega heilsu verri. Helmingur þátttakenda hefur nýtt sér sálrænan stuðning og segja hann hafa nýst vel. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu um viðhorf Grindvíkinga sem Grindavíkurnefnd birti í gær. Könnunin varpar ljósi á hagi, líðan og framtíðaráform Grindvíkinga rúmum tveimur árum eftir rýmingu bæjarins í nóvember 2023. Þátttaka í félagsstörfum hefur dregist saman meðal Grindvíkinga eftir rýmingu. Rúm 80% aðspurðra lýstu sterku tengslaneti í Grindavík en einungis 37% segja að tengslanet þeirra sé sterkt í dag. Eldri borgarar meta þó heilsu sína betri en yngri aldurshópar, þátttakendur í aldurshópnum 50–59 ára upplifa mest álag á andlega líðan. Börn virk í íþróttum og tómstundastarfi Foreldrar veittu upplýsingar um börn sín að 18 ára aldri. Samkvæmt svörum þeirra hafa 87% barna eignast nýja vini, tæplega 80% þeirra hafa aðlagast vel í skóla og um 70% stunda íþróttir eða tómstundastarf, sem er svipað hlutfall og fyrir rýmingu. Þó telur rúmur þriðjungur foreldra að andleg heilsa barna sinna sé verri en áður. Af þeim sem nýttu sér sálrænan stuðning sem var í boði í kjölfar rýmingar segir meirihluti foreldra hann hafa gagnast vel. Þá er tilgreint í niðurstöðum könnunarinnar að foreldrar sem meti eigin líðan verri séu líklegri til að meta líðan barna sinna á sama hátt. Þær niðurstöður samræmist alþjóðlegum rannsóknum og undirstriki mikilvægi þess að styðja markvisst við foreldra sem burðarás í bataferli barna. Óvissa um framvindu náttúruhamfaranna hefur áhrif á val á búsetu 10% svarenda hafa flutt aftur í Grindavík en meirihlutinn hefur sest að annars staðar, einkum í Reykjanesbæ og á höfuðborgarsvæðinu. Um 65% svarenda búa í eigin húsnæði og tæplega þrír af hverjum fjórum eru í launuðu starfi. Þá hafa 41% svarenda sem eru á vinnumarkaði skipt um starf frá rýmingu. Þegar þátttakendur voru spurðir út í framtíðarsýn og búsetuáform sögðust 15% þátttakenda telja líklegt að þau flytji aftur til Grindavíkur á þessu ári. Helstu ástæður eru sterk tenging við bæinn og vilji til að snúa aftur á fyrra heimili. Af þeim svarendum sem ekki ráðgera að flytja aftur til Grindavíkur á næstunni sögðu þau ástæðuna vera óvissu um framvindu náttúruhamfaranna og að börn séu farin að festa rætur á nýjum stað. Á sama tíma segjast 73% geta hugsað sér að búa áfram þar sem þau eru næstu árin. Grindvíkingar seigir og með virka atvinnuþátttöku Alls tóku 1.470 einstaklingar þátt í könnuninni, eða um 54% bæjarbúa 18 ára og eldri. Auk þess veittu foreldrar upplýsingar fyrir 1.171 barn. Niðurstöður könnunarinnar benda til að áhrifa rýmingarinnar gæti enn, sérstaklega hvað varðar félagsleg tengsl og andlega líðan. Þó sýna niðurstöður merki um seiglu og virka atvinnuþátttöku meðal þátttakenda. Niðurstöður könnunarinnar verða nýttar af Grindavíkurnefnd og stjórnvöldum við áframhaldandi stefnumótun. Heildarniðurstöður könnunarinnar má sjá hér .