Þegar ólympíuhópur Íslands var kynntur í janúar voru í honum tveir keppendur í alpagreinum, Jón Erik Sigurðsson og Elín Elmarsdóttir Van Pelt. Síðdegis á sunnudaginn sl. fékk Ísland skyndilega aukasæti í alpagreinum kvenna á Vetrarólympíuleikunum. Skemmtilegt og sjokkerandi símtal á sunnudagskvöldi Skíðasamband Íslands úthlutaði því sæti til Sonju Lí Kristinsdóttur og þar með var ljóst að hún myndi feta í fótspor föður síns, Kristins Magnússonar, sem keppti á Vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City í Bandaríkjunum árið 2002. Sonja býr í Geilo í Noregi og æfir skíðaíþróttina þar. Hún segir að sunnudagurinn hafi byrjað rólega en svo hafi allt breyst. „Þegar ég ætlaði að leggjast á koddann komu fréttir sem voru skemmtilegar og sjokkerandi. -Þannig að þú hefur verið fljót að segja já? -Ég trúði þessu ekki fyrst þannig að það tók smá tíma þangað til orðið já kom upp úr mér.“ Skíðakonan Sonja Lí Kristinsdóttir er óvænt komin á Vetrarólympíuleikana á Ítalíu eftir að Ísland fékk skyndilega aukasæti í alpagreinum kvenna. Faðir hennar, sem er einnig ólympíufari og er staddur á leikunum, getur miðlað reynslu til dóttur sinnar. Getur miðlað reynslunni til dóttur sinnar Kristinn var þá þegar staddur á Vetrarólympíuleikunum sem þjálfari. „Ég var á lista sem varaþjálfari. Það var mjög skemmtilegt þegar hún hringdi í okkur seint um kvöld og tilkynnti okkur að hún hefði fengið símtalið.“ Sonja segir að það skipti miklu máli fyrir sig að feta í fótspor föður síns. Kristinn segir það hafa verið frábæra upplifun að taka þátt í Vetrarólympíuleikum. „Þetta var allt mjög stórt,“ segir Kristinn sem telur að hann geti miðlað af sinni reynslu til dóttur sinnar. „Já ég hugsa það. Það þarf að setja hausinn undir sig eins og í venjulegu móti og ekki að láta umhverfið taka völdin á síðustu stundu, að það sé of mikil spenna.“ Keppir á sunnudaginn Sonja er ríkjandi Íslandsmeistari í svigi, fædd árið 2006 og keppir fyrir Skíðafélag Akureyrar. Hún keppir í stórsvigi sunnudaginn 15. febrúar og svigi miðvikudaginn 18. febrúar, eins og Elín Elmarsdóttir Van Pelt.