„Það er í raun ótrúlegt að ríkisstjórnin kjósi að leggja þetta frumvarp fram, ekki síst á þessum tímapunkti, þar sem hún segist leggja mikla áherslu á hallalaus ríkisfjármál og að ná niður verðbólgu. Frumvarpið vinnur þvert gegn báðum þeim markmiðum,“ segir Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið.