Danitza Alpaca tekur yfir Apótek á Food and Fun

Einn þeirra kokka sem vekja sérstaka athygli á Food and Fun í ár er Danitza Alpaca, matreiðslumeistari frá Arequipa í Perú. Hún mun leiða eldhúsið á Apóteki og færa með sér sjónarhorn sem sameinar suður-amerískar rætur, franska tækni og ítalska nákvæmni.