Innflytjandi pitsaosts með íblandaðri jurtaolíu telur tollgæslustjóra hafa verið vanhæfan þegar hann gaf út bindandi álit um umdeilda tollflokkun ostsins, þar sem hann hefði áður lofað MS að osturinn yrði settur í flokk sem ber háan toll. Tollflokkunin gengur í berhögg við álit Alþjóðatollastofnunarinnar en starfsmaður Tollsins segir að ávallt sé farið eftir álitum stofnunarinnar, liggi þau á annað borð fyrir.