„Það verður enginn betri manneskja af því einu að hafa það betra,“ sagði amma gjarnan þegar rætt var um náungann. Þess vegna verð ég óróleg þegar umræðan um útlendinga á Íslandi fær á sig óvæginn blæ. Það er brýnt að bæta stefnu stjórnvalda í innflytjendamálum af raunsæi, en slíkt má aldrei snúast upp í andúð á fólki.