Vegkaflinn þar sem banaslys varð á Miklubraut á dögunum er ekki á forgangslista Vegagerðarinnar yfir vegaframkvæmdir. Vegagerðin segir það ekki munu koma í ljós fyrr en skýrsla Rannsóknarnefndar samgönguslysa liggur fyrir hvort ástand vegarins hafi átt þátt í slysinu.