Sjöundi keppnisdagur Vetrarólympíuleikanna er í Mílanó og Cortina á Ítalíu í dag og þá verður Kristrún Guðnadóttir í sviðsljósinu. Hún verður meðal þátttakenda í 10 km skíðagöngu með frjálsri aðferð sem hefst klukkan 12 á hádegi og verður í beinni útsendingu á RÚV 2. Þetta er önnur keppnisgrein Kristrúnar á leikunum. Hún keppti í sprettgöngu á þriðjudaginn og hafnaði í 61. sæti af 89 keppendum sem hófu keppni í undankeppninni. 30 efstu komust í úrslit svo Kristrún komst ekki áfram. Kristrún hefur sigrað í öllum flokkum á Íslandsmóti í gönguskíðum frá 2019. Hún hefur einnig náð góðum árangri erlendis, bæði í styttri og lengri göngum. Þetta eru aðrir Ólympíuleikar Kristrúnar því hún keppti í sprettgöngu í Beijing í Kína fyrir fjórum árum. Engin Vonn og sviðsljósið á Goggia Mikil eftirvænting er fyrir hraðagreininni risasvigi kvenna þrátt fyrir fjarveru Lindsey Vonn. Bandaríska ofurstjarnan datt illa í bruninu á sunnudaginn og fótbrotnaði og er ekki ólíklegt að keppnisferli hennar sé lokið. Fjarvera Lindsey Vonn þýðir að mesta athyglin verður á heimakonunni Sofia Goggia og Nýsjálendingnum Alice Robinson. Sú ítalska vann til bronsverðlauna í bruninu á sunnudag og er stigahæst í risasvigi í heimsbikarnum þegar fjórum mótum er lokið á tímabilinu. Goggia sem er 33 ára hefur komist á verðlaunapall í þremur þeirra, þar af sigrað einu sinni. Reikna má með einvígi um sigurinn milli Goggia og Robinson en sú síðarnefnda er í öðru sæti stigalistans í risasvgi í heimsbikarnum á eftir Goggia. Robinson sigraði á fyrsta móti vetrarins og náði silfverðlaunum á því næsta. Lindsey Vonn er í þriðja sæti stigalistans en eins og áður segir hefur hún lokið keppni. Aðrar skíðakonur geta þó vissulega blandað sér í baráttuna og í því samhengi eru helst nefndar hin ítalska Federica Brignone, Svisslendingurinn Malorie Blanc og Þjóðverjinn Emma Aicher. Ríkjandi Ólympíumeistari í greininni, Lara Gut-Behrami frá Sviss, missir af risasviginu vegna meiðsla. Alls verða átta beinar útsendingar frá Vetrarólympíuleikunum í dag auk Ólympíukvölds. Alls verður keppt til úrslita í níu greinum. Risasvig kvenna verður fyrsta beina útsending dagsins og svo tekur hver greinin við af annarri fram á kvöld.