Úr heimilisleysi í eldhúsið á fínum veitingastað í Bandaríkjunum

Friðgeir Trausti Helgason er ljósmyndari og matreiðslumaður á einum besta veitingastaðnum í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum. Leiðin þangað var grýtt og hann yfirsteig hindranir á borð við heimilisleysi og fíknisjúkdóm til að komast þangað. Guðrún Sóley og Jakob Halldórsson í Kastljósi heimsóttu Friðgeir og heyrðu sögu hans yfir rótsterkum kaffibolla. Síðustu ár hefur Þorgeir Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður unnið að heimildamynd um Friðgeir og hann lét RÚV í té brot úr henni í umfjöllunina. Vegur Friðgeirs Trausta Helgasonar ljósmyndara og matreiðslumanns hefur vægast sagt verið vandrataður. Hann flutti ungur til Los Angeles en það seig hratt á ógæfuhliðina og hann varð heimilislaus og bjó á Skid Row um tíma. Hann spyrnti við fótum og vann sig upp innan veitingageirans samhliða ferli í ljósmyndun. „Ég ætla bara að vera hérna“ Ég var eiginlega heimilislaus á þeim tíma, ég bjó í netabát sem ég var að vinna á úti á Granda og ákvað að heimsækja mömmu um jólin. Ég yfirgaf Ísland á aðfangadag klukkan sex 1986. Flaug til LA og lendi í LA á jóladagsmorgun klukkan sex. Það er 25 stiga hiti og sól og ég leit í kringum mig og hugsaði: þetta er fínt ég ætla bara að vera hérna. Ég hef búið í Bandaríkjunum síðan. Fór í meðferð og hætti að drekka Friðgeir flutti fljótlega frá Los Angeles til New Orleans til að læra matreiðslu. Það gekk vel og hann náði skjótum árangri í faginu. „Ég vann á bestu veitingahúsunum og annað slíkt en ég varð líka alveg agalega mikil fyllibytta í leiðinni.“ 2004 var hann búsettur á Skid Row í LA og nokkurn veginn orðinn heimilislaus. Skid Row er hverfi heimilislausra í Los Angeles, þar sem hátt í 9000 búa við dapran kost. Þar eru átök og ofbeldi daglegt brauð og lögregluútköll sömuleiðis en byggðin er gríðarlega þétt, í tjöldum, hreysum og gistiskýlum. Ég skreið þar inn á heimili sem heitir Midnight mission og hætti að drekka brennivín. Ég varð edrú, fór í skóla, lærði ljósmyndun og svo kynntist ég konunni minni henni Súsönnu. Við byrjuðum að búa saman og ég fór að vinna í ljósmyndun. Vann bæði á fátækasta og ríkasta stað borgarinnar Skid Row og aðstæður heimilislausra í Los Angeles hafa verið í fréttum síðustu ár og þykja skelfilegar. Friðgeir segir ástandið hafa verið eins þegar hann var þar. Það var slæmt en ekki eins slæmt og það er í dag. Mamma býr á Skid Row núna í LA og er þar í vernduðu húsnæði. Ég fer að heimsækja hana stundum. Misskipting auðs og fátæktar verður alltaf verri og verri í Kaliforníu. Það er agalegt að horfa upp á það. Eftir að Friðgeir hætti að drekka hélt hann sig frá matreiðslustörfum og vann þess í stað á meðferðarheimilum og sinnti rágjöf þar. Þegar ég byrjaði þá var ég í homeless shelter sjálfur á Skid Row og svo er ég að vinna í Beverly Hills í villum fyrir lið sem, þú veist ef það var edrú í þrjátíu daga gaf pabbi þeim nýjan BMW. Ég var á fátækasta stað í Bandaríkjunum og svo ríkasta stað í Bandaríkjunum. Ljósmyndar meðfram matreiðslunni Friðgeir hefur alla tíð sinnt listrænni sköpun á hliðarlínunni, og ást á ljósmyndum kviknaði snemma. Hann byrjaði að ljósmynda árið 2006. Þá var hann í skóla í Los Angeles að læra kvikmyndagerð en skipti yfir í ljósmyndun sem átti vel við hann. „Ég fór strax að vinna að minni eigin rödd og hef verið að ljósmynda með kokkaríinu síðan þá. Það eru að verða 20 ár,“ segir hann. Þetta er svo mikil ástríða hjá mér, ég veit til dæmis ekkert skemmtilegra en að þvælast um endalausa þjóðvegi Bandaríkjanna og það er alveg nóg af þeim hérna í Nýju Mexíkó. Ég til dæmis tek einn til tvo daga í viku alveg í að keyra um fylkið í svona 10-14 tíma með ljósmyndavélina. Nýjasta ljósmyndasyrpa Friðgeirs heitir By the time I get to Albequerque og er mynduð í bíltúrum hans um ríkið. Hann fær líka útrás fyrir sköpun í matreiðslunni. Íslendingafélagið Los Kindos Friðgeir á góða vini í borginni því þar búa Magnús Sigurðarson myndlistarmaður og Steinunn Briem Bjarnadóttir eða Steina Vasulka vídeólistamaður. „Þegar ég flutti hingað 2022 þá vissi ég af Magga hérna og ég og Maggi vorum saman í MH í gamla daga svo við byrjuðum náttúrulega strax að grallarast eitthvað saman. Fréttum af Steinu og höfðum samband við hana og fórum bara heim til hennar og drógum hana út í kaffi og kökur, og kókoshnetupæ og Mexíkó,“ segir Friðgeir. Við stofnuðum New Mexíkó Íslendingafélagið Los Kindos. Við erum öll gjaldkerar og við hittumst svona einu sinni í mánuði og förum vanalega á Plaza Café í Santa Fe og tölum um allt nema listir. Andrúmsloft í fageldhúsum hefur löngum þótt erfitt, með öskrandi átökum, en það er ekki umhverfi fyrir Friðgeir. Þegar ég stjórna eldhúsi þá er það alltaf gert með gleði og hamingju. Þetta er erfið vinna en hún þarf ekki að vera svona erfið, hún þarf ekki að vera stressandi. Fyrir rúmum 20 árum var Friðgeir Trausti Helgason heimilislaus á Skid Row í Los Angeles. Hann fór inn á meðferðarheimili, varð edrú og lærði ljósmyndun. Nú er hann matreiðslumaður á einum besta veitingastaðnum í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum.