Allt að fimmtán stiga frost í dag

Nú er eins gott að klæða sig vel því það verður kalt um allt land. Útlit er fyrir allt að fimmtán stiga frost í innsveitum og þó kuldinn bíti minna annars staðar verður hiti alltaf nokkuð undir frostmarki. Veðurspáin er svohljóðandi: Norðlæg eða breytileg átt þrír til tíu metrar á sekúndu, en strekkingur austast fram á kvöld. Víða él um landið norðanvert, og sums staðar við suðurströndina, annars bjart að mestu. Frost 3 til 15 stig, kaldast inn til landsins.