Verður Reykja­vík grænasta borg Evrópu?

Reykjavík gæti orðið grænasta borgin í Evrópu ef við þorum að setja markið hátt. Það er margt gott að gerjast í umhverfismálum borgarinnar en við eigum svo sannarlega mikinn metnað inni. Náttúran er ekki sú eina sem myndi græða á róttækari umhverfisaðgerðum í borginni heldur myndu þær auka lífsgæði okkar allra.