Átján ára fangelsisdómur yfir móður sem banaði einu barni sínu og reyndi að bana öðru stendur. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar sem kvað upp dóm sinn í gær. Refsingin sem konan hlaut er þyngsti dómur yfir konu hér á landi í meira en öld. Konan banaði sex ára syni sínum og reyndi að bana ellefu ára syni sínum í Kópavogi. Verjandi konunnar krafðist ómerkingar dóms yfir henni þar sem henni hefði verið synjað um viðbótarmat um geðheilsu sína. Hæstiréttur hafnaði þessum rökum og sagði að spurningar í beiðni um viðbótarmat fælu í sér efnislega beiðni um nýtt mat á atriðum um geðheilsu konunnar sem hefði þegar verið fjallað um. Skúli Magnússon hæstaréttardómari skilaði sératkvæði. Hann vísaði til lagaákvæða um að þegar manneskja hefði framið brot í ákafri geðshræringu eða vegna annars skammvinns ójafnvægis á geðsmunum gæti það horft til refsilækkunar. Skúli sagði að líta yrði til þess að konan hefði verið í verulegu ójafnvægi á geðsmunum þegar hún framdi brot sín en að hún hefði gengið skipulega og sumpart yfirvegað til verks. Hann sagði að þetta ætti að hafa áhrif til refsimildunar en ekki breyta því að hún væri sakfelld fyrir alvarleg og stórfelld brot gegn sonum sínum.