Fyrrverandi ráðherra dæmdur í sjö ára fangelsi

Lee Sang-min, fyrrverandi innanríkisráðherra Suður-Kóreu, var í dag dæmdur til sjö ára fangelsisvistar fyrir sinn þátt í því að Yoon Suk Yeol, þáverandi forseti, leysti upp þingið og lýsti yfir herlögum. Forsetinn sendi herinn af stað til að koma í veg fyrir störf þingsins en varð að bakka með valdatöku sína. Lee Sang-min fyrirskipaði að lokað yrði á dreifingu rafmagns og vatns til fjölmiðla sem þóttu fjalla á gagnrýninn hátt um framgöngu forsetans. Dómararnir sögðu að með þessu hefði hann brotið gegn grunngildum lýðræðisins. Hann var einnig dæmdur fyrir meinsæri með því að neita fyrir dómi að hafa gefið þessi fyrirmæli. Lee Sang-min.EPA / YONHAP