Hver eru samningsmarkmiðin?

Þess eru engin dæmi í sögu ESB að ­ríkisstjórn þjóðar gangi til aðildarviðræðna að sambandinu án þess að njóta stuðnings eigin þjóðþings fyrir inngöngu. Engar vísbendingar eru um að meirihluti sé fyrir aðild Íslands að ESB á Alþingi. Engu að síður hefur formaður Samfylkingarinnar sagt að nú sé rétti tíminn að renna upp til þess að hefja Evrópuumræðuna á ný.