Af hverju rekum við mörg smáríki í 250 þúsund manna samfélagi?
Undantekningalítið, þegar minnst er á sameiningu sveitarfélaga, er fyrsti viðmælandi fjölmiðla bæjarstjóri. Einhver annar ætti auðvitað að taka samtalið, ekki einstaklingur sem gæti, ef af sameiningu yrði, misst embætti sitt og valdastöðu.