Hart var barist um kjör­bréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður

Ríflega 860 manns eru á kjörskrá fyrir 38. flokksþing Framsóknarflokksins sem fram fer í Reykjavík um helgina. Þar mun flokkurinn velja sér nýjan formann en ólíklegt þykir að allir sem eiga sæti muni mæta. Hörð barátta hefur verið um að tryggja kjörbréf, en samkvæmt heimildum fréttastofu eru dæmi um að stuðningsmenn formannsframbjóðenda hafi tryggt kjörbréf í gegnum flokksfélög til að koma í veg fyrir að stuðningsmenn hins frambjóðandans geti stutt sína konu. Þá eru allmargir flokksþingsfulltrúar sagðir óákveðnir og ekki eins skýrar línur á milli fylkinga líkt og stundum hefur verið áður.