„Vissulega líf eftir stjórnmálin“

„Undanfarið tæpt ár hef ég verið að sinna ýmsum verkefnum sem hafa aðallega snúið að lögfræðilegri ráðgjöf. Nú tel ég tímabært að festa þetta aðeins betur í sessi, taka út lögmannsréttindin og sinna lögmennsku af fullum krafti,“ segir Teitur Björn Einarsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, sem nú vendir sínu kvæði í kross.