Vísa í nafnið á fyrsta golf­velli Reyk­víkinga við val á nýju götu­nafni

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt tillögu götunafnanefndar um að ný vistgata sem verður til á Kringlureit fái nafnið Mjóamýri. Í rökstuðningi segir að á umræddum reit hafi verið að finna vestustu holur fyrsta golfvallar Reykjavíkur sem kallaðist golfvöllurinn í Mjóumýri.